Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

Mál nr. 552/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 552/2023

Mánudaginn 11. desember 2023

A

gegn

barnaverndarþjónustu B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Guðfinna Eydal sálfræðingur.

Með kæru, dags. 17. nóvember 2023, barst kæra A, vegna umgengni hennar við dóttur sína.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. nóvember 2023. Samkvæmt upplýsingum frá barnaverndarþjónustu B hefur ekki verið úrskurðað í máli kæranda.

Frekari gagna var ekki aflað vegna kærunnar.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi geri kröfu um meiri umgengni við dóttur sína.

III.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 51. gr. bvl. geta aðilar barnaverndarmáls skotið úrskurði eða ákvörðun samkvæmt 6. gr. laganna til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir tillaga barnaverndarþjónustu um umgengni kæranda við dóttur sína. Þar sem ekki hefur náðst sátt um umgengi er það umdæmisráð sem úrskurðar um ágreiningsefni er varðar umgengni kæranda við dóttur hennar. Þar sem ekki liggur fyrir kæranlegur úrskurður til úrskurðarnefndar velferðarmála er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarnefndin bendir kæranda á að þegar úrskurður umdæmiráðs liggur fyrir er hægt að kæra hann til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því tilkynnt var um úrskurðinn sbr, 1. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum